Jafnt hjá Stjörnunni og Grindavík

Hólmbert Aron Friðjónsson, til hægri, skoraði fyrir Stjörnuna í kvöld.
Hólmbert Aron Friðjónsson, til hægri, skoraði fyrir Stjörnuna í kvöld. mbl.is/Golli

Grindvíkingar, nýliðarnir í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, gerðu í kvöld jafntefli við Stjörnuna, 1:1, þegar liðin mættust á fotbolti.net-mótinu í Kórnum.

Andri Rúnar Bjarnason kom Grindvíkingum yfir en Hólmbert Aron Friðjónsson jafnaði fyrir Stjörnuna undir lok fyrri hálfleiks og þar við sat.

Stjarnan er með 4 stig eftir tvo leiki en Grindvíkingar luku riðlakeppninni með 2 stig úr þremur leikjum. ÍA er með 3 stig eftir 2 leiki og Víkingur Ó. eitt stig eftir einn leik, en Ólafsvíkingar eiga eftir að mæta bæði ÍA og Stjörnunni.

Í B-deild mótsins vann Njarðvík sigur á Haukum, 4:3, og HK og Grótta skildu jöfn, 1:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert