Tveir nýliðar í landsliðshópnum

Agla María Albertsdóttir, til vinstri, er nýliði í landsliðshópnum.
Agla María Albertsdóttir, til vinstri, er nýliði í landsliðshópnum. mbl.is/Árni Sæberg

Freyr Alexandersson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur valið landsliðshópinn sem mætir Slóvakíu og Hollandi í vináttuleikjum ytra í næsta mánuði.

Ísland mætir Slóvakíu 6. apríl og Hollandi 11. febrúar. Tveir nýliðar eru í landsliðshópi Freys að þessu sinni en það eru miðjumaðurinn Agla María Albertsdóttir úr Stjörnunni og varnarmaðurinn Ingibjörg Sigurðardóttir úr Breiðabliki.

Fimm leikmenn sem léku með landsliðinu í Algarve-bikarnum fyrr í þessum mánuði eru ekki í hópnum en það eru þær Dóra María Lárusdóttir og Sandra María Jessen, sem báðar meiddust illa í Portúgal, Dagný Brynjarsdóttir, Thelma Björk Einarsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir. Í þeirra stað koma nýliðarnir Agla María og Ingibjörg og þær Andrea Rán Hauksdóttir og Hrafnhildur Hauksdóttir.

Leikirnir eru liðir í undirbúningi landsliðsins fyrir úrslitakeppni EM sem fram fer í Hollandi í júlí en þar leikur Ísland í riðli með Austurríki, Frakklandi og Sviss.

Leikmannahópurinn lítur þannig út:

Markverðir:
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Djurgården (47)
Sandra Sigurðardóttir, Val (15)
Sonný Lára Þráinsdóttir, Breiðabliki (3)

Varnarmenn:
Rakel Hönnudóttir, Breiðabliki (79)
Anna Björk Kristjánsdóttir, LB07 (30)
Sif Atladóttir, Kristianstad (59)
Hrafnhildur Hauksdóttir, Val (3)
Glódís Perla Viggósdóttir, Eskilstuna (50)
Ingibjörg Sigurðardóttir, Breiðabliki (0)
Elísa Viðarsdóttir, Val (33)
Hallbera Guðný Gísladóttir, Djurgården (80)

Miðjumenn:
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Vålerenga (38)
Andra Rán Hauksdóttir, Breiðabliki (3)
Sara Björk Gunnarsdóttir, Wolfsburg (102)
Sigríður Lára Garðarsdóttir, ÍBV (5)
Málfríður Erna Sigurðardóttir, Val (30)
Agla María Albertsdóttir, Stjörnunni (0)
Fanndís Friðriksdóttir, Breiðabliki (80)

Sóknarmenn:
Katrín Ásbjörnsdóttir, Stjörnunni (9)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabliki (23)
Margrét Lára Viðarsdóttir, Val (115)
Guðmunda Brynja Óladóttir, Stjörnunni (13)
Elín Metta Jensen, Val (25)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert