KR og Fjölnir berjast um 5. sætið í kvöld

Gunnar Már Gunnarsson og Morten Beck í baráttu um boltann …
Gunnar Már Gunnarsson og Morten Beck í baráttu um boltann í viðureign KR og Fjölnis í fyrra. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

KR og Fjölnir eigast við í frestuðum leik frá því í 10. umferð í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á Alvogenvellinum í Frostaskjóli í kvöld.

Leikur liðanna verður barátta um 5. sætið í deildinni. Fjölnir er í sjötta sæti deildarinnar með 15 stig en KR er með 14 stig í 9. sætinu. Sigurliðið úr leiknum í kvöld kemst upp fyrir KA sem er með 15 stig í 5. sæti deildarinnar.

KR vann góðan 3:0 útsigur gegn Víkingi um síðustu helgi og Fjölnir vann sinn annan leik í röð þegar það hafði betur á móti ÍBV í Grafarvogi, 2:1.

Flautað verður til leiks klukkan 19.15 og verður fylgst með gangi mála í leiknum hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert