Þær gerðu þetta fullkomlega

Freyr spjallar við mbl.is eftir leik í dag.
Freyr spjallar við mbl.is eftir leik í dag. Ljósmynd/Reimund Sand

„Þetta er geggjað, ég upplifði svolítið langar mínútur þegar ég var á bekknum í lokin, en þetta er snilld," sagði Elín Metta Jensen, framherji íslenska landsliðsins í knattspyrnu í samtali við RÚV eftir magnaðan 3:2-útisigur á Þýskalandi í undankeppni HM í dag, en Þýskaland er með eitt allra besta landslið í heimi. 

„Við gerðum nákvæmlega það sem var lagt upp með og það gekk fullkomlega upp. Við þurftum að hafa trú á að við getum skorað og við sýndum að við getum það, við hefðum þess vegna getað skorað fleiri mörk í þessum leik."

„Þetta gæti ekki verið betra, HM draumurinn er lifandi og við höldum áfram núna," sagði Elín að lokum. 

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, gat verið mjög stoltur af sínu liði. 

„Ég er mjög stoltur, þetta var geðveikt. Við erum búin að vinna vel að þessu og stelpurnar eiga hrós skilið, þær gerðu þetta fullkomlega, voru ógeðslega hugrakkar, kraftmiklar og góðar. Þetta var nánast fullkomið og ég er mjög ánægður," sagði Freyr í samtali við RÚV eftir leik. 

„Það þurfti eitthvað að detta með okkur en mér fannst við betri á þeim forsendum sem við spiluðum leikinn, við fengum fullt af færum en mér leið þangað til á 90. mínútu þó að þær hafi fengið eitthvað af færum, annars vorum við með leikinn í okkar höndum."

Þrjár mínútur eins og þrjár vikur

Þær þýsku sóttu án afláts í blálokin eftir að minnka muninn í 3:2. Freyr viðurkennir að það hafi verið erfitt að fylgjast með. 

„Þessar þrjár mínútur voru eins og þrjár vikur," sagði hann hlæjandi. 

En hvað þýðir þessi sigur upp á framhaldið að gera? 

„Við þurfum eitt stig í Tékklandi til að ná markmiðinu sem við lögðum upp með þegar við komum hingað og við höfum tækifæri til að ná í sex stig úr þessum tveimur leikjum og þá erum við með stjórnina í þessum riðli. Minn draumur er að vera í bílstjórasætinu þegar við spilum á Íslandi í september á næsta ári til að komast beina leið á HM," sagði Freyr. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert