Hinn 22 ára gamli Brandur Olsen hefur gengið í raðir FH frá danska félaginu Randers. Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, var við stjórnvölinn hjá Randers og þekkir því vel til Brands.
Brandur gekk í raðir FC Kaupmannahafnar 16 ára gamall og lék átta leiki fyrir aðallið félagsins og skoraði tvö mörk.
Árið 2016 var hann lánaður til B-deildarliðsins Vendsyssel FF þar sem hann lék 11 leiki.
Sumarið 2016 skrifaði Brandur undir þriggja ára samning við Randers. Meðan á tveggja ára veru hans hjá félaginu stóð kom hann aðeins níu sinnum við sögu og skoraði eitt mark.
Á sama tíma hefur Brandur leikið 16 leiki fyrir færeyska landsliðið og skorað í þeim þrjú mörk.
FH hefur Íslandsmótið 28. apríl þegar liðið sækir Grindavík heim.
FH hefur samið við færeyska landsliðs manninn Brand Olsen. Brandur er 22 ára miðjumaður sem hefur spilað með FC Kaupmannahöfn og Randers í Danmörku á sínum ferli. Við bjóðum Brand velkominn í Kaplakrika. #ViðerumFH #fotboltinet pic.twitter.com/EmI1umoPds
— FHingar.net (@fhingar) April 21, 2018