Guðmann aftur til FH

Guðmann Þórisson
Guðmann Þórisson mbl.is/Árni Sæberg

Miðvörðurinn Guðmann Þórisson er kominn í raðir FH á nýjan leik frá KA en hann hefur verið á Akureyri síðan 2016 og verið fyrirliði Akureyrarliðsins.

Guðmann var í herbúðum FH 2012 - 2014 og aftur 2015 - 2016 en lék í Svíþjóð í millitíðinni. Varð hann Íslandsmeistari með FH 2012 og 2015. 

Guðmann er 31 árs gamall og uppalinn í Breiðabliki. Hann gerir tveggja ára samning við Hafnarfjarðarliðið. 

„Það er virkilega gaman að koma aftur í FH, í Kaplakrika er alltaf mikil metnaður og það líkar mér,“ er haft eftir Guðmanni á heimasíðu FH. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert