Landsliðið æfir í Belgíu (myndskeið)

Birkir Bjarnason og Aron Einar Gunnarsson á landsliðsæfingu.
Birkir Bjarnason og Aron Einar Gunnarsson á landsliðsæfingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu kom saman í Brussel í dag fyrir komandi leik gegn Belgíu í Þjóðadeildinni sem fram fer þar í landi á fimmtudagskvöld.

Leikmenn koma víðs vegar að og var fyrsta æfingin haldin nú síðdegis. Mikil forföll eru í hópnum eins og mbl.is hefur greint frá, en um helgina heltust þeir Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson úr lestinni vegna meiðsla sem þeir urðu fyrir með liðum sínum.

Mbl.is er í Belgíu og fylgir landsliðinu eftir, en leikur þjóðanna er á dagskrá klukkan 19.45 á fimmtudagskvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert