Viðar Örn Kjartansson verður ekki með íslenska landsliðinu sem mætir Tyrkjum í undankeppni Evrópumóts karla í fótbolta 2020 á morgun vegna veikinda. Fótbolti.net greindi frá.
Viðar hefur ekkert getað æft með liðinu í Tyrklandi vegna flensu og varð hann eftir í Antalya þegar liðið flaug til Istanbul í dag.
„Viðar kom á sunnudag með hita og veikindi og hefur ekki getað æft. Hann er enn í Antalya og verður ekki með á morgun. Vonandi verður hann í lagi í leiknum gegn Moldóvu á sunnudaginn," sagði Erik Hamrén landsliðsþjálfari á blaðamannafundi í dag.