Íslandsmeistararnir semja við framherja

Tiffany McCarty í leik með Selfossi síðasta sumar.
Tiffany McCarty í leik með Selfossi síðasta sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bandaríska knattspyrnukonan Tiffany McCarty er gengin til liðs við Breiðablik.

Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en McCarty er þrítug að árum.

Hún þekkir vel til á Íslandi eftir að hafa leikið með Selfossi í úrvalsdeildinni, Pepsi Max-deildinni, á síðustu leiktíð.

Hún skoraði níu mörk í sextán leikjum í efstu deild með Selfyssingum síðasta sumar en liðið endaði í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar eftir að keppni var hætt vegna þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins í lok október.

McCarty lék með Florida-háskólanum í Bandaríkjunum frá 2008 til 2012 en hefur einnig leikið með Washington Spirit, Houston Dash og Kansas City í Bandaríkjunum.

Þá hefur hún einnig leikið með Medkila í norsku B-deildinni á ferlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert