Ungur Akureyringur til nýliðanna

Dagbjartur Búi Davíðsson leikur með Dalvík/Reyni á komandi tímabili.
Dagbjartur Búi Davíðsson leikur með Dalvík/Reyni á komandi tímabili. Ljósmynd/Dalvík/Reynir

Sóknarmaðurinn Dagbjartur Búi Davíðsson hefur verið lánaður til Dalvíkur/Reynis frá KA og mun leika með liðinu á komandi leiktíð.

Dagbjartur lék 22 leiki með KF í 2. deild á síðustu leiktíð og skoraði í þeim fjögur mörk. Er leikmaðurinn á átjánda aldursári. Hann lék þrjá leiki með Hömrunum í 4. deild árið 2022 og skoraði í þeim fimm mörk.

Dalvík/Reynir, sem verður nýliði í 1. deildinni á komandi leiktíð, hefur verið duglegt á félagaskiptamarkaðinum undanfarnar vikur og fengið til sín Frey Jónsson, Nikola Kristinn Stojanovic, Alejandro Zambrano, Björgvin Bjarnason og Abdeen Abdul.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert