Leikmenn í aðalliðum karla og kvenna hjá Liverpool ásamt yngri flokkum, minnast í meðfylgjandi myndskeiði hinna 96 sem létust í Hillsborough slysinu árið 1989, þar sem 25 ár eru liðin frá harmleiknum í Sheffield. Leikmenn Liverpool telja upp nöfn þeirra er létust í harmleiknum á Hillsborough í myndskeiðinu.
Sérstaklega áhrifaríkt er að sjá þegar Steven Gerrard fyrirliði fer með nafn frænda síns Jon-Paul Gilhooley, sem var 10 ára þegar hann lést. Þá sést Katrín Ómarsdóttir landsliðskona Íslands og leikmaður kvennaliðs Liverpool leggja sitt af mörkum þegar 1:55 mín. er liðin af myndskeiðinu.
Sjón er sögu ríkari.