Boruc samdi við nýliðana

Olivier Giroud tekur boltann af Artur Boruc þegar hann lék …
Olivier Giroud tekur boltann af Artur Boruc þegar hann lék með Southampton. AFP

Pólski markvörðurinn Artur Boruc hefur samið við Bournemouth, nýkrýnda meistara í ensku B-deildinni í knattspyrnu, til eins árs eftir að Southampton ákvað að láta kappann fara.

Boruc varði mark Bournemouth í vetur en hann var þá á láni frá Southampton. Hann er 35 ára gamall og lék hátt í 50 leiki í ensku úrvalsdeildinni fyrir Southampton á árunum 2012-2014, eftir að hafa áður leikið með Fiorentina, Celtic og Legia Varsjá.

Bournemouth verður nýliði í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir að hafa unnið B-deildina, stigi á undan Watford.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert