Klopp kynntur á morgun

Jürgen Klopp tekur við Liverpool.
Jürgen Klopp tekur við Liverpool. AFP

Jürgen Klopp verður kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Liverpool á morgun en þetta herma heimildir BBC.

Brendan Rodgers var sagt upp störfum hjá Liverpool á dögunum eftir brösuglega byrjun á tímabilinu en eigendur enska félagsins fóru strax í það að hefja viðræður við eftirmann hans.

Lierpool hefur verið í viðræðum við Klopp undanfarna daga en svo virðist sem samkomulag sé í höfn og hann komi til með að skrifa undir þriggja ára samning á morgun.

Samkvæmt heimildum BBC verður Klopp kynntur fyrir fjölmiðlum á morgun en hann þjálfaði síðast Borussia Dortmund í Þýskalandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert