Hollenska félagsliðið Ajax hefur áhuga á að kaupa ítalska framherjann Mario Balotelli frá Liverpool að því gefnu að liðið komist áfram í undankeppni Meistaradeildarinnar. Þessu greinir ítalski íþróttafjölmiðillinn Di Marzio frá.
Balotelli mun hafa verið boðið til Napoli sem vantar framherja eftir söluna á Gonzalo Higuain en Napoli sýndi lítinn áhuga. Þá hefur Balotelli fengið boð frá ítalska félagsliðinu Pescara sem hann á að hafa afþakkað. Ajax þykir nú líklegasti áfangastaðurinn.
Balotelli, sem er 25 ára gamall, var á láni frá Liverpool hjá AC Milan á síðustu leiktíð, en félagið ákvað að kaupa hann ekki.