Enska knattspyrnuliðið Tottenham lagði París SG að velli, 4:2, þegar liðin mættust í Orlando á Flórída í nótt.
Staðan var 2:2 í hálfleik eftir að Edinson Cavani og Javier Pastore skoruðu fyrir PSG og Christian Erikson og Eric Dier fyrir Tottenham.
Kevin Trapp, hinn þýski markvörður PSG, fékk rauða spjaldið í byrjun síðari hálfleiks. Tottenham tryggði sér sigurinn á lokakafla leiksins þegar Toby Alderweireld skoraði glæsilegt mark og Harry Kane átti lokaorðið.