Liðsfélagi Gylfa sneri aftur eftir 11 mánuði

Yannick Bolasie skallar boltann.
Yannick Bolasie skallar boltann. AFP

Yannick Bolasie, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, sneri aftur á æfingu í dag eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðustu 11 mánuði.

Hinn 28 ára gamli Bolaise skaddaði krossband í hné í leik gegn Manchester United 4. desember í fyrra. Síðan þá hefur hann þurft að gangast undir tvær aðgerðir á hné, en hann var byrjaður að æfa með varaliðinu í síðustu viku áður en hann byrjaði að æfa með aðalliðinu í dag.

Boasie spilaði 15 leiki með Everton áður en hann meiddist, en hann kom til félagsins frá Crystal Palace sumarið 2016 fyrir 25 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert