Segja Sánchez fá treyju númer 7

Alexis Sánchez hefur að öllum líkindum spilað sinn síðasta leik …
Alexis Sánchez hefur að öllum líkindum spilað sinn síðasta leik fyrir Arsenal. AFP

Spænska dagblaðið Marca greinir frá því í dag að Alexis Sánchez muni fá treyju númer sjö hjá Manchester United er félagsskipti hans frá Arsenal ganga í gegn. Ljóst er að Henrikh Mkhitaryan mun fara í hina áttina.

Í frétt Marca kemur einnig fram að Manchester United hafi ekki áhuga á að fá Cristiano Ronaldo til félagsins frá Real Madrid. Ronaldo ku vera ósáttur við lífið og tilveruna hjá spænska risanum, en Jose Mourinho ætlar ekki að sækjast eftir að fá stjörnuna til liðs við sig. 

Gareth Bale, liðsfélagi Ronaldo, er ekki heldur á óskalista Manchester-félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert