Welbeck ekki refsað fyrir dýfuna

Danny Welbeck
Danny Welbeck AFP

Enski knattspyrnumaðurinn Danny Welbeck fær ekki refsingu fyrir leikaraskap sinn í 3:1-sigri Arsenal á AC Milan í Evrópudeildinni síðastliðinn fimmtudag. Welbeck fór mjög auðveldlega niður innan teigs í fyrri hálfleiknum og fékk vítaspyrnu sem hann skoraði sjálfur úr. 

Aganefnd knattspyrnusambands Evrópu fór yfir málið og ákvað að refsa Welbeck ekki fyrir tilburði sína. „Dóm­ar­inn var maður leiks­ins í kvöld. Ég mun ekki gleyma þessu,“ sagði Hak­an Cal­hanoglu, leikmaður Milan um atvikið. 

Welbeck getur því leikið með Arsenal er það mætir CKSA Moskvu snemma í næsta mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert