Klopp verður að vinna titil á tímabilinu

Jürgen Klopp.
Jürgen Klopp. AFP

Phil Thompson ein af goðsögnum Liverpool segir að Jürgen Klopp verði að vinna titil í ár og sigur í ensku deildabikarkeppninni sé gott tækifæri til þess.

Liverpool tekur á móti Chelsea í 3. umferð deildabikarsins í kvöld en Liverpool hefur byrjað leiktíðina með frábærum hætti, hefur unnið alla sex deildarleiki sína og hafði betur á móti Paris SG í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

„Klopp verður að vinna titil á þessu tímabili með þann mannskap sem hann er með. Það yrði frábært að sjá Liverpool vinna deildabikarinn,“ segir Thompson, sem vill sjá leikmenn eins og Nathaniel Clyne, Joel Matip og Fabinho fá tækifæri í leiknum í kvöld en Klopp staðfesti í gær að Simon Mignolet muni verja mark Liverpool í kvöld.

„Ég tel að Klopp hafi gott tækifæri til að leyfa þeim leikmönnum sem lítið hafa spilað að spreyta sig í leiknum í kvöld,“ segir Thompson.

Leikir kvöldsins í deildabikarnum:

18.45 Arsenal - Brent­ford
18.45 West Ham - Macc­les­field
18.45 Li­verpool - Chel­sea
19.00 Totten­ham - Wat­ford

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert