Rakel mætir Manchester United

Rakel Hönnudóttir og liðsfélagar hennar í Reading mæta Manchester United …
Rakel Hönnudóttir og liðsfélagar hennar í Reading mæta Manchester United í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Ljósmynd/Reading.com

Rakel Hönnudóttir og liðsfélagar hennar í enska knattspyrnuliðinu Reading mæta Manchester United í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar en dregið var núna rétt í þessu. Reading lagði Birmingham í sextán liða úrslitum keppninnar um helgina, 2:1, en Rakel skoraði sigurmark leiksins eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Rakel samdi við Reading í síðasta mánuði og hefur skorað þrjú mörk í þremur leikjum fyrir félagið, þrátt fyrir að hafa byrjað á bekknum í þeim öllum. Reading er í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Manchester United er í öðru sæti ensku B-deildarinnar.

Dráttinn í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

Reading - Manchester United
Aston Villa - West Ham
Durham - Chelsea
Manchester City - Liverpool

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert