Portúgalinn líklegur eftirmaður Klopps

Rúben Amorim gæti tekið við af Jürgen Klopp.
Rúben Amorim gæti tekið við af Jürgen Klopp. AFP/Miguel Riopa

Portúgalski knattspyrnustjórinn Rúben Amorim er líklegur eftirmaður Jürgens Klopps hjá Liverpool, nú þegar ljóst er að félagið nær ekki að fá Xabi Alonso frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

Sky Sports greinir frá. Alonso hefur verið orðaður við bæði Liverpool og Bayern München en hann ætlar að vera áfram með Leverkusen í eitt tímabil til viðbótar, hið minnsta.

Amorim hefur gert góða hluti með Sporting í heimalandinu og þá er leikstíll hans og Klopps svipaður. Vann Sporting bæði deildina og bikarinn árið 2021 og svo bikarinn aftur árið 2022 undir stjórn Amorims.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert