Áfram hjá Arsenal

Jorginho er lykilmaður í liði Arsenal.
Jorginho er lykilmaður í liði Arsenal. AFP/Adrian Dennis

Knattspyrnumaðurinn reyndi Jorginho hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við enska stórfélagið Arsenal. 

Jorginho gekk í raðir félagsins í janúar 2023 og hefur síðan verið lykilmaður og er varafyrirliði liðsins. 

Ítalinn er einnig hugsaður sem leiðtogi liðsins en samkvæmt enskum miðlum metur Mikel Arteta, knattspyrnustjóri liðsins, mikið hlutverk hans innan klefans. 

Arsenal er í mikilli toppbaráttu um þessar mundir en liðið er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar er tvær umferðir eru eftir. Manchester City er í öðru sæti með stigi minna en á leik til góða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert