Óvissa með Kolbein

Kolbeinn Sigþórsson í leik Ajax og Feyenoord um síðustu helgi.
Kolbeinn Sigþórsson í leik Ajax og Feyenoord um síðustu helgi. EPA

Óvíst er hvort Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmiðherji í knattspyrnu, geti spilað með Ajax gegn Vitesse í hollensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Á vef Ajax segir að Kolbeinn sé einn þriggja leikmanna sem tvísýnt sé um fyrir leikinn en hann glími við eymsli í hægra hné.

Ajax er sex stigum á eftir PSV Eindhoven í fyrirsjáanlegu einvígi liðanna um hollensku meistaratitilinn en eftir 19 umferðir af 34 er PSV með 49 stig og Ajax 43 stig. Ajax hefur unnið meistaratitilinn fjögur ár í röð og Kolbeinn hefur tekið þátt í þremur síðustu sigrunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert