Kaiserslautern með nýtt tilboð í Jón Daða

Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þýska B-deildarliðið Kaiserslautern hefur gert norska úrvalsdeildarliðinu Viking nýtt tilboð í landsliðsmanninn Jón Daða Böðvarsson.

Forráðamenn Viking höfnuðu á dögunum tilboði Þjóðverjanna sem var á bilinu 2-3 milljónir norskra króna, 33-50 milljónir íslenskra króna, en nú hefur Viking borist nýtt tilboð í sóknarmanninn frá Selfossi.

Jón Daði á hálft ár eftir af samningi sínum við Viking og hann vill róa á önnur mið og segir Kaiserslautern vera góðan kost.

„Ég hef alltaf verið hrifinn af þýska fótboltanum. Kaiserslautern er stórt félag og í sterkri deild og ég tek að leikstíllinn hjá liðinu henti mér vel,“ sagði Jón Daði við norska blaðið Aftenbladet.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert