Andrea Mandorlini þjálfari ítalska knattspyrnuliðsins Hellas Verona, sem landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson leikur með, var í kvöld rekinn frá störfum vegna slaks árangur liðsins á tímabilinu.
Lið Verona er án sigurs í fyrstu 14 leikjunum í deildinni á tímabilinu og situr liðið í botnsæti deildarinnar með aðeins sex stig.
Mandorlini hefur stýrt liðinu undanfarin fimm ár og undir hans stjórn fór liðið úr C-deildinni upp í A-deildina.