Kolbeinn spilaði í tapi

Kolbeinn Sigþórsson í leik með Nantes.
Kolbeinn Sigþórsson í leik með Nantes. AFP

Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, var í byrjunarliði Nantes sem tapaði 1:0 fyrir Bordeaux í frönsku 1. deildinni í dag.

Íslenski framherjinn byrjaði inni á í dag en honum var skipt af velli á 86. mínútu.

Nantes hefur ekki farið neitt sérlega vel af stað á þessu tímabili en liðið er með einn sigur úr fyrstu þremur leikjunum.

Kolbeinn er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Úkraínu í undankeppni HM í byrjun september.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert