Lewandowski skaut Bayern á toppinn

Robert Lewandowski skoraði tvö mörk í kvöld.
Robert Lewandowski skoraði tvö mörk í kvöld. AFP

Bayern München komst á topp þýsku Bundesligunnar í knattspyrnu í kvöld með 3:1 útisigri gegn Mainz.

Mainz komst í 1:0 strax á 4. mínútu með marki frá Jhon Cordoba en tvö mörk frá Pólverjanum Robert Lewandowski og eitt frá Hollendingnum Arjen Robben tryggðu meisturunum sigurinn.

Bayern München er með 30 stig eins og Leipzig. Markatala Bæjara er betri en Leipzig á leik til góða og tekur á móti Schalke á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert