Boateng fjarri góðu gamni

Jerome Boateng.
Jerome Boateng. AFP

Jerome Boateng, leikmaður Bayern München í Þýskalandi, verður ekki með liðinu gegn Atlético Madrid í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu á morgun.

Boateng meiddist eftir sigur Bayern á Mainz á föstudag og missir því af stórleiknum á morgun en Atlético er þegar búið að fagna sigri í riðlinum.

Boateng verður því fjarri góðu gamni á morgun ásamt Kingsley Coman og Julian Green en Holger Badstuber og Xabi Alonso eru þó klárir.

Atlético er í efsta sæti riðilsins með 15 stig en Bayern er með 9 stig. Rostov er með 4 stig í þriðja sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert