David Villa valinn bestur

David Villa með sigurlaunin.
David Villa með sigurlaunin. AFP

Gamla kempan David Villa var valinn leikmaður ársins í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu en hann raðaði inn mörkum fyrir New York. 

Villa skoraði 23 mörk í deildinni en hann Spánverjinn er orðinn 35 ára gamall. Næstir á eftir Villa í kjörinu voru Sebastian Giovinco hjá Toronto og Bradley Wright-Phillips hjá New York.

Villa fór til Bandaríkjanna árið 2014 eftir farsælan feril á Spáni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert