44,5 milljóna punda tilboði City hafnað

Benjamin Mendy í leik með franska landsliðinu.
Benjamin Mendy í leik með franska landsliðinu. AFP

Monaco hefur hafnað tilboði frá Manchester City upp á 44,5 milljónir punda fyrir bakvörðinn Benjamin Mendy. Það er greinilega nóg eftir í sparibauk City, þar sem aðeins eru örfáir dagar síðan félagið keypti Kyle Walker á 50 milljónir punda. 

Mendy var einn besti leikmaður Monaco á síðustu leiktíð. Liðið varð Frakklandsmeistari og komst auk þess í undanúrslit Meistaradeildarinnar. 

Talið er næsta öruggt að City bjóði aftur í leikmanninn á næstu dögum, enda Pep Guardiola staðráðinn í að fá sér vinstri bakvörð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert