Sverrir skoraði sigurmarkið (myndband)

Sverrir Ingi Ingason er að gera fína hluti með Rostov.
Sverrir Ingi Ingason er að gera fína hluti með Rostov. AFP

Sverrir Ingi Ingason skoraði sigurmark Rostov sem hafði betur gegn Ufa á heimavelli í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær, 1:0. Rostov er í 9. sæti deildarinnar með 25 stig eftir sigurinn. 

Miðvörðurinn hefur verið í stóru hlutverki hjá Rostov á leiktíðinni eftir að hann gekk í raðir félagsins frá Granada á Spáni í sumar. Hér að neðan má sjá markið sem Sverrir skoraði, en það var með góðum skalla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert