Enginn Chiellini gegn Real Madrid?

Giorgio Chiellini.
Giorgio Chiellini. AFP

Giorgio Chiellini, varnarmaðurinn reyndi í liði Juventus og ítalska landsliðsins í knattspyrnu, á það á hættu að missa af fyrri leik Juventus og Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Chiellini varð fyrir meiðslum í markalausu jafntefli Juventus gegn SPAL í ítölsku A-deildinni og af þeim sökum hefur hann dregið sig út úr landsliðshópnum fyrir vináttuleikina gegn Argentínumönnum og Englendingum sem fram fara í kringum næstu helgi.

Fyrri leikur Juventus og Real Madrid í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar fer fram 3. apríl á heimavelli Juventus og hann gæti orðið í kapphlaupi við tímann að ná sér góðum af meiðslunum fyrir þann leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert