Iniesta á leið til Japans

Andrés Iniesta kveður stuðningsmenn Barcelona.
Andrés Iniesta kveður stuðningsmenn Barcelona. AFP

Spænskir fjölmiðlar greina frá því að spænski landsliðsmaðurinn Andrés Iniesta, sem lauk 16 ára ferli sínum með Barcelona um síðustu helgi, muni ganga í raðir japanska liðsins Vissel Kobe.

Iniesta hélt áleiðis til Japan í dag og er búist við því að hann verði kynntur til leiks sem nýr leikmaður Vissel Kobe á morgun.

Með liði Vissel Kobe leikur Lukas Podolski fyrrum landsliðsmaður Þjóðverja sem gekk í raðir félagsins í fyrra og á árum áður spilaði Daninn Michael Laudrup með félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert