Mikilvægt sigurmark Mikaels í umspilinu

Mikael Anderson í leik með Vendsyssel.
Mikael Anderson í leik með Vendsyssel. Ljósmynd/https://www.vendsysselff.dk/

Mikael Anderson og liðsfélagar hans í danska liðinu Vendsyssel eru í fínni stöðu eftir fyrri leik sinn við Lyngby í umspili um sæti í efstu deild fótboltans þar í landi. Mikael spilaði allan leikinn, sem fór fram á heimavelli Vendsyssel, og skoraði sigurmarkið á 23. mínútu.

Vendsyssel hafnaði í 3. sæti dönsku B-deildarinnar á leiktíðinni og tryggði sér sæti í umspilinu á meðan Lyngby tapaði í umspili við Randers, sem hélt sæti sínu í deildinni. Síðari leikurinn fer fram á heimavelli Lyngby á sunnudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert