Hazard ekki með Chelsea gegn PAOK

Eden Hazard hefur farið frábærlega af stað með Chelsea í …
Eden Hazard hefur farið frábærlega af stað með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. AFP

Eden Hazard, sóknarmaður enska knattspyrnufélagsins Chelsea, verður ekki með liðinu á morgun þegar Chelsea heimsækir gríska liðið PAOK í 1. umferð L-riðils Evrópudeildar UEFA en það er Sky Sports sem greinir frá þessu.

Hazard hefur farið frábærlega af stað með Chelsea á þessari leiktíð og hefur Belginn skorað fimm mörk og lagt upp önnur tvö í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Chelsea leikur í L-riðli Evrópudeildarinnar, ásamt PAOK, Vidi frá Ungverjalandi og BATE frá Hvíta-Rússlandi.

Chelsea endaði í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, síðasta vor, og leikur því í Evrópudeild UEFA á þessari leiktíð en liðið hefur spilað í Meistaradeild Evrópu undanfarin ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert