Ungi Englendingurinn bestur í Þýskalandi

Jadon Sancho hefur leikið mjög vel með Dortmund.
Jadon Sancho hefur leikið mjög vel með Dortmund. AFP

Hinn átján ára gamli Englendingur Jadon Sancho hefur verið valinn besti leikmaður þýsku Bundesligunnar í knattspyrnu í októbermánuði en hann hefur slegið hressilega í gegn með liði Dortmund.

Dortmund keypti Sancho af Manchester City fyrir tíu milljónir punda á síðasta ári og hann hefur látið verulega að sér kveða. Í þremur leikjum liðsins í október skoraði hann þrjú mörk og lagði eitt upp en Dortmund er á toppi deildarinnar. Sancho hefur lagt upp sex mörk á tímabilinu og á flestar stoðsendingar allra í deildinni.

Þá lék Sancho sinn fyrsta A-landsleik fyrir Englands hönd gegn Króatíu í síðasta mánuði. Hann var síðan í fyrsta skipti í byrjunarliði Englands í gærkvöld í 3:0 sigri á Bandaríkjamönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert