Maradona steig sigurdans (myndskeið)

Diego Maradona mætir í leikinn í gær.
Diego Maradona mætir í leikinn í gær. AFP

Gimnasia La Plata er að rétta úr kútnum undir stjórn Diego Armando Maradona í efstu deild argentísku knattspyrnunnar. 

Liðið hefur unnið þrjá af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni og alla á útivelli. Maradona tók við liðinu í september. Liðið er nú með 10 stig í 22. sæti eða þriðja neðsta í deildinni. 

Gimnasia vann Aldosivi 3:0 á útivelli í gær og gamla kempan steig lipur dansspor í búningsklefanum að leiknum loknum eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert