Dregið verður til sextán liða úrslitanna í Meistaradeild karla í fótbolta í höfuðstöðvum UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu, í Nyon í Sviss klukkan 11 að íslenskum tíma.
Liðin sextán eru dregin úr tveimur styrkleikaflokkum en liðin sem unnu riðlana eru dregin gegn liðunum sem höfnuðu í öðru sæti og fá fyrrnefndu liðin seinni leikinn á sínum heimavelli.
Lið frá sama landi geta ekki dregist saman og heldur ekki þau sem voru í sama riðli í riðlakeppninni í vetur.
Í efri styrkleikaflokknum eru þessi lið:
Barcelona, Spáni
Bayern München, Þýskalandi
Juventus, Ítalíu
RB Leipzig, Þýskalandi
Liverpool, Englandi
Manchester City, Englandi
París SG, Frakklandi
Valencia, Spáni
Í neðri styrkleikaflokknum eru þessi lið:
Atalanta, Ítalíu
Atlético Madrid, Spáni
Chelsea, Englandi
Dortmund, Þýskalandi
Lyon, Frakklandi
Napoli, Ítalíu
Real Madrid, Spáni
Tottenham, Englandi
Leikir í sextán liða úrslitum eru spilaðir 18.-26. febrúar og 10.-18. mars.