Daníel Tristan Guðjohnsen, 16 ára knattspyrnumaður, samdi við sænska félagið Malmö í sumar, eftir að hafa verið í U16 ára liði Real Madrid á Spáni. Daníel leikur með U19 ára liði Malmö og æfir með A-liðinu sömuleiðis.
„Ég heyrði af áhuga Malmö þegar ég var í Madrid og áhuginn virkaði einstakur. Ég held þetta hafi verið rétt skref á mínum ferli. Ég fylgdi innsæinu,“ sagði Daníel í samtali við Fotbollskanalen í Svíþjóð.
„Fólk sem þekkir mig ekki og stuðningsmenn setja mikla pressu á mig og bræður mína út af Guðjohnsen-nafninu en ég ætla að njóta þess að spila og ekki láta pressuna hafa áhrif á mig,“ bætti hann við.
Max Westerberg, þjálfari Daníels hjá U19 ára liði Malmö er hrifinn af íslenska leikmanninum.
„Honum hefur gengið mjög vel. Hann hefur samt ekki farið fram úr okkar væntingum, þar sem væntingarnar okkar voru gríðarlega háar. Hann hefur staðist þær mjög vel. Það er ekki hægt að kvarta yfir neinu.
Hann leggur sig mikið fram og er 100 prósent í öllu sem hann gerir. Hann er mjög hæfileikaríkur og virðist staðráðinn í að spila fyrir aðalliðið hérna. Hann er mjög þroskaður, miðað við aldur,“ sagði Westerberg.
Daníel Tristan er yngsti sonur Eiðs Smára Guðjohnsen, eins fremsta knattspyrnumanns í sögu Íslands og núverandi þjálfara FH, og Ragnhildar Sveinsdóttur.
Eldri bræður hans tveir, A-landsliðsmennirnir Sveinn Aron og Andri Lucas, eru einnig atvinnumenn í Svíþjóð þar sem sá fyrrnefndi leikur með Elfsborg og sá síðarnefndi með Norrköping.
Allir bræðurnir þrír eru því á mála hjá sænskum úrvalsdeildarfélögum um þessar mundir.