Átti stórleik er liðið gott sem tryggði sér í úrslitin

Stefán Teitur Þórðarson í leik með íslenska landsliðinu.
Stefán Teitur Þórðarson í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Stefán Teitur Þórðarson fór á kostum í stórsigri Silkeborg á Fredericia, 6:1, í fyrri leik liðanna í undaúrslitum danska bikarsins í Silkeborg í dag. 

Stefán Teitur skoraði tvö mörk. Fyrsta mark Silkeborg á 15. mínútu og það þriðja á 24. Var hann síðan tekinn af velli í hálfleik. 

Seinni lekur liðanna fer fram 11. apríl. 

Þá unnu Mikael Neville Anderson og félagar í AGF útisigur á Nordsjælland, 3:2, í hinum undanúrslitaleiknum. 

Mikael lék allan leikinn en liðin mætast aftur í Árósum 11. apríl. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert