Arnór skoraði glæsimark í jafntefli (myndskeið)

Arnór Ingvi Traustason.
Arnór Ingvi Traustason. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason skoraði glæsilegt mark fyrir Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Leikurinn endaði 1:1 gegn Gautaborg þar sem Kolbein Þórðarson og Adam Ingi Benediktsson spila. Kolbeinn spilaði allan leikinn en Adam var á bekknum.

Arnór skoraði fyrsta mark leiksins á 33. mínútu sem var glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu en þetta var hans fyrsta mark á tímabilinu. 

Það dugði þó skammt en Gautaborg jafnaði metin á 40. mínútu og fleiri urðu mörkin ekki.

Ísak Andri Sigurgeirsson, liðsfélagi Arnórs, kom inn á sem varamaður á 80. mínútu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka