Emilía Kiær Ásgeirsdóttir og stöllur í Nordsjælland unnu, 10:2, yfirburðasigur á Næstved á útivelli í undanúrlitum í dönsku bikarkeppninni í fótbolta í dag.
Nordsjælland vann fyrri leik liðanna 7:0 og einvígið samtals 17:2. Emilía skoraði þriðja mark Nordsjælland í leiknum í dag og fór af velli á 70. mínútu.
Nordsjælland mætir því Bröndby í úrslitaleiknum en Kristín Dís Árnadóttir og Hafrún Rakel Halldórsdóttir eru leikmenn liðsins. Kristín er í stóru hlutverki en Hafrún Rakel er handleggsbrotin.
https://www.mbl.is/sport/fotbolti/2024/05/17/sneru_taflinu_vid_og_foru_i_urslit/
Emilía og Kristín eru í 23 manna landslisðhópnum sem mætir Austurríki tvisvar í undankeppni Evrópumótsins 31. maí og 4. júní.
https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/05/17/katla_emilia_og_cecilia_i_landslidinu/