Vann gull á jiu-jitsu móti

Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson.

Gunnar  Nelson vann til gullverðlauna í sínum flokki á jiu-jitsu móti í Kalíforníu Bandaríkjunum í gærkvöldi. Um er að ræða sjálfsvarnaríþrótt sem svipar til júdó. 

Gunnar vann fimm glímur í leið sinni að gullinu. Í úrslitunum glímdi hann við Bruno Alves sem hlaut silfurverðlaun á síðasta heimsmeistaramóti. Gunnar sigraði Alves á hengingartaki eftir þriggja mínútna viðureign.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert