Tiana Ósk í undanúrslit

Tiana Ósk Whitworth.
Tiana Ósk Whitworth. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Spretthlauparinn Tiana Ósk Whitworth úr ÍR keppti í undanrásum í 100 m hlaupi kvenna á Evrópumeistaramóti 16-19 í frjálsum íþróttum í í Grosseto á Ítalíu í morgun.

Hún hljóp á tímanum 11,97 sekúndum (-0,1 m/s) og hafnaði í 4. sæti í 3. riðli. Fjórir bestu tímarnir í hverjum riðli komust beint áfram og auk þess fjórir bestu tímarnir þar á eftir.

Náði hún 18. besta tímanum í undanrásunum í morgun af 39 keppendum. Með þessum árangri tryggði hún sér sæti í undanúrslitum en þau fara fram síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert