Aldís Kara skautakona ársins

Aldís Kara Bergsdóttir
Aldís Kara Bergsdóttir Ljósmynd/Skautasamband Íslands

Aldís Kara Bergsdóttir hefur verið valin skautakona ársins 2019 af Skautasambandi Íslands. Aldís Kara æfir með Skautafélagi Akureyrar undir leiðsögn Darja Zajcenko og keppir í unglingaflokki kvenna. Þetta er í fyrsta sinn sem hún hlýtur titilinn en Eva Dögg Sæ­munds­dótt­ir hlaut nafnbótina í fyrra.

Aldís Kara er verðugur fulltrúi ÍSS og vel að viðurkenningunni komin þar sem hún hefur sýnt mikinn dugnað og metnað við iðkun íþróttarinnar. Hún hefur sýnt góðan stöðugleika í keppnum og verið á mikilli siglingu stigalega séð og náði hún á árinu lágmarks tæknistigum ISU í stuttu prógrammi. Fyrir utan innlend mót á vegum ÍSS á árinu 2019 hefur Aldís Kara keppt á RIG, Norðurlandamóti, Junior Grand Prix  og á Halloween Cup.

Árið 2019 byrjaði Aldís á því að bæta stigamet hjá íslenskum skautara á RIG með 108,45 stig. Á Norðurlandamótinu hlaut hún 103,52 stig, en það eru hæstu stig sem íslenskur skautari hefur fengið á Norðurlandamóti. Á Vormóti ÍSS sýndi Aldís að hún er nálægt því að komast á ISU Junior Worlds þar sem hún náði lágmarks tæknistigum ISU fyrir það mót í bæði stuttu og frjálsu prógrammi, en ná þarf þessum lágmarksstigum á opnu alþjóðlegu móti til þess að öðlast keppnisréttinn.

Nýtt keppnistímabil hófst svo með því að Aldís keppti fyrir Íslands hönd á Junior Grand Prix mótaröðinni þar sem hún bætti stigamet íslensk skautara á þessari mótaröð og endaði með 106,43 stig. Aldís bætti Íslandsmet í frjálsu prógrammi á Haustmóti ÍSS 2019 en þar fékk hún 82 stig fyrir frjálst prógram en samanlagt 116,09 stig sem var einnig persónulegt met og nýtt Íslandsmet í heildarstigum. Á Halloween Cup náði Aldís Kara lágmarks tæknistigum ISU í stuttu prógrammi fyrir ISU Junior Worlds og er það mót opið alþjóðlegt mót. Aldís Kara hélt áfram að bæta sig persónulega og bætti eigið Íslandsmet á Vetrarmóti ÍSS þar sem hún endaði með 127,69 heildarstig. Hún lauk svo árinu með stæl og endaði sem Íslandsmeistari í Junior Ladies 2019 með 118,22 heildarstig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert