Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir þarf að leika betur, ætli hún sér í gegnum niðurskurðinn á Indy Women in Tech-mótinu í LPGA-mótaröðinni. Ólafía lék hringinn í gær á pari, en hún hefur leikið fyrri níu holurnar í dag á einu höggi yfir pari og er því á parinu, þegar níu holur eru eftir.
Niðurskurðurinn sem stendur miðast við tvö högg undir parið og þarf Ólafía því að minnsta kosti að leika síðari níu holurnar á tveimur höggum undir parinu. Nasa Hatoka frá Japan er með forystu þegar fréttin er skrifuð, á tólf höggum undir pari.