Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék sinn fjórða og síðasta hring á Nordea Masters-mótinu í golfi en leikið er í Gautaborg í Svíþjóð. Hann lék hringinn í dag á 71 höggi eða einu yfir pari. Það var jafnframt heildarskor hans eftir hringina fjóra.
Hann lék því töluvert betur frá því gær er hann átti afleitan hring þar sem hann lék á fimm höggum yfir pari. Þar áður hafði hann leikið annan hringinn á pari og þann fyrsta á þremur höggum undir. Í morgun fór hann ágætlega af stað en fékk enn skramba og einn þrefaldan skolla sem settu svip sinn á hringinn. Hann lauk keppni með sex fugla og tvo skolla þar að auki.
Birgir lýkur því keppni alls á einu höggi yfir pari og hafnar í 68.-72. sæti en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni, þeirri sterkustu í álfunni.