Andri og Guðmundur hefja leik á morgun

Andri Þór Björnsson.
Andri Þór Björnsson.

Fimm íslenskir atvinnukylfingar taka þátt á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi á þessu hausti. Fjallað er um það á golf.is í dag.

Keppt er á átta mismunandi stöðum í Evrópu á 1. stigi úrtökumótsins. Um 700 kylfingar taka þátt á 1. stigi úrtökumótsins og um 25% þeirra komast inn á 2. stigið. Þeir sem komast í gegnum 2. stig úrtökumótsins keppa síðan á lokaúrtökumótinu í nóvember.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Andri Þór Björnsson, báðir úr GR, hefja leik á morgun, þriðjudag, á Frilford Heath-vellinum á Englandi. Þetta er í þriðja sinn sem þeir reyna fyrir sér á úrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Árið 2016 komust þeir báðir í gegnum 1. stigið en féllu úr leik á 2. stiginu. Í fyrra náðu þeir ekki að komast í gegnum 1. stigið.

Axel Bóasson úr GK keppir í Portúgal dagana 9.-12. október. Haraldur Franklín Magnús er þegar kominn í gegn og á 2. stig úrtökumótsins, en hann keppti í síðustu viku í Austurríki. Ólafur Björn Loftsson var þar einnig á meðal keppenda en komst ekki áfram.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert