Hafnarfjarðarmótið hefst á morgun

Haukar og Valur verða með á Hafnarfjarðarmótinu.
Haukar og Valur verða með á Hafnarfjarðarmótinu. Styrmir Kári

Hafnarfjarðarmótið í handknattleik hefst á morgun, en mótið fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu. Bæði Hafnarfjarðarliðin verða með, en alls munu karlalið FH, Haukar, Valur og Afturelding leika á mótinu.

Mótið hefst á viðureign heimamanna í FH og Mosfellinga kl. 18 en Haukar og Valur mætast kl. 20.

Miðvikudagur 23. ágúst

18:00 FH - Afturelding

20:00 Haukar - Valur

Föstudagur 25. ágúst

18:00 Haukar - Afturelding

20:00 FH - Valur

Laugardagur 26. ágúst

14:00 Afturelding - Valur

16:00 FH - Haukar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert