Aron Pálmarsson og félagar hans í Barcelona áttu ekki í vandræðum með að leggja Zagreb að velli í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik í Zagreb í kvöld.
Barcelona landaði átta marka sigri, 32:24, eftir að hafa haft fimm marka forystu í hálfleik, 16:11.
Aron lék töluvert mikið í leiknum og skoraði tvö stórglæsileg mörk en hann er hægt og bítandi að komast inn í leikstíl Barcelona-liðsins.
Með sigrinum komst Barcelona upp í annað sæti riðilsins. Liðið er með 12 stig og þremur stigum á eftir Vardar sem á leik til góða sem og Rhein-Neckar Löwen og Nantes sem eru með 11 stig.